Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 70/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 7. október 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 70/2010.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 26. apríl 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hafi á fundi sínum þann 23. apríl 2010 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 15. febrúar 2010. Fallist var á umsókn kæranda en réttur hennar til atvinnuleysisbóta var felldur niður í 40 daga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. c-lið 3. gr. laganna, þar sem hún hætti í námi. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 3. maí 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Vinnumálastofnun óskaði skýringa hjá kæranda með bréfi, dags. 22. mars 2010, á því hvers vegna hún hafi hætt námi við Háskóla Íslands. Skýringarbréf kæranda barst 31. mars 2010. Kom þar fram að námslokin stafi af því að eftir þriggja anna nám í sálfræði við Háskóla Íslands hafi kærandi séð að námið hafi ekki átt við sig.

Kærandi var skráð í nám í sálfræði við Háskóla Íslands háskólaárið 2009–2010, en samkvæmt vottorði skólans, dags. 24. febrúar 2010, tilkynnti hún formlega þann dag að hún væri hætt námi og fram kom að hún hafi ekki stundað nám frá áramótum. Kærandi kveðst í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða hafa hætt námi vegna þess að hún hafi fallið í áfanga á haustönn 2009 og þ.a.l. hafi ekki verið í boði fyrir hana nógu margar einingar á vorönn 2010 til þess að hún fengi námslán. Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 15. febrúar 2010. Stofnunin óskaði í kjölfarið skýringa kæranda á námslokum. Kærandi svaraði því til að eftir þriggja anna nám í sálfræði við Háskóla Íslands hafi hún séð að námið ætti ekki við sig. Kærandi segir fjárhagsstöðu sína vera afar erfiða vegna hinnar kærðu ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar, dags. 20. september 2010, er vitnað til 1. mgr. 55. laga um atvinnuleysistryggingar og bent á að í greinargerð við umrædda grein frumvarps til laga um atvinnuleysistryggingar sé í umfjöllun um 1. mgr. 55. gr. laganna vísað til athugasemda við 54. gr. frumvarpsins um hvaða ástæður geti talist gildar ástæður. Í greinargerðinni segi við 1. mgr. 54. gr. að erfitt geti reynst að telja upp endanlega þau tilvik, þ.e. hvaða ástæður séu gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. og lagareglan sé því matskennd. Sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Skuli stofnunin líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða og hafa í huga að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Jafnframt beri að líta til þess að orðalagið „gildar ástæður“ beri að túlka þröngt í þessu samhengi og þar af leiðandi færri tilvik en ella sem falli þar undir.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafa fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Gera verði þá kröfu til þeirra sem segi upp starfi sínu eða hætta námi að þeir hafi til þess gildar ástæður. Í skýringum þeim er kærandi færi fyrir úrskurðarnefnd segi kærandi ástæður þess að hún hætti námi hjá Háskóla Íslands meðal annars vera þær að hún hafi ekki náð lágmarksárangri í einum áfanga í sálfræðinámi, það hafi leitt til þess að hún hafi ekki átt kost á því að nýta sér lánamöguleika Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Vegna bágrar fjárhagsstöðu hafi kærandi því skráð sig úr námi enda fyrirséð að hún gæti ekki sótt um námslán hjá lánasjóðnum vegna vorannar 2010. Kærandi taki fram í kæru sinni að hún hyggist ekki halda námi sínu áfram á næsta misseri. Fram kemur af hálfu Vinnumálastofnunar að það sé mat hennar að skýringar þær er kærandi hafi fært fyrir brottfalli sínu úr námi, bæði í skýringarbréfi til stofnunarinnar og í kæru sinni til úrskurðarnefndar, geti ekki talist gildar ástæður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun fallist ekki á að fall nemanda í áföngum geti talist til gildra ástæðna í skilningi 1. mgr. 55. gr. laganna, þó svo að brottfall úr einstökum áföngum kunni að leiða til þess að nemandi eigi ekki rétt á námsláni frá Lánasjóði íslenskra námsmanna.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 21. september 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 5. október 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur hætt námi, sbr. c-lið 3. gr., án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Staðfesting frá viðkomandi skóla um að námi hafi verið hætt skal fylgja umsókninni.

Í athugasemdum við 55. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að eðlilegra þyki að þeir sem hætta í námi án þess að hafa til þess gildar ástæður þurfi að sæta sams konar biðtíma og þeir sem hætti störfum án gildra ástæðna, sbr. 54. gr. frumvarpsins. Skipti þá ekki hvenær á námsönn hlutaðeigandi hætti námi. Gert sé ráð fyrir að vottorð frá hlutaðeigandi skóla um að hann hafi hætt námi fylgi umsókninni. Að öðru leyti er vísað til athugasemda við 54. gr. frumvarpsins. Þar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Það er mat úrskurðarnefndarinnar að ástæður þær, sem kærandi hefur fært fram fyrir því að hún hætti háskólanámi, séu ekki gildar í skilningi 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi þessa, sem og röksemda þeirra sem Vinnumálastofnun hefur fært fram í málinu, verður hin kærða ákvörðun staðfest

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 23. apríl 2010, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta í 40 daga til A er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum